Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við WRO®
Ísland er Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík.
Almenn persónuverndarstefna Háskóla Íslands gildir um meðferð
persónuupplýsinga hjá háskólanum. Sjá nánar:
Persónuverndarstefna Háskóla Íslands
.
Hvaða upplýsingar eru unnar?
WRO® Ísland safnar fyrst og fremst
upplýsingum um fullorðna þjálfara, tengiliði skóla eða stofnana og
aðra fullorðna umsjónaraðila.
- Nafn þjálfara eða tengiliðar
- Netfang og símanúmer
- Nafn skóla, stofnunar eða liðs
- Upplýsingar um fjölda liða, keppnisflokka og aldurshópa
- Upplýsingar tengdar búnaðarpöntunum, skráningu eða skipulagi móts
Upplýsingar um nemendur
Almennt er ekki óskað eftir persónugreinanlegum upplýsingum um
nemendur á vefnum. Til að raða liðum í rétta aldurshópa getur þó
þurft að vinna með upplýsingar um fæðingarár eða aldurshóp.
Ef lið kemst áfram á alþjóðlegt mót getur þurft að safna frekari
upplýsingum um nemendur og þjálfara vegna skráningar, ferðalaga eða
annarra hagnýtra atriða.
Tilgangur vinnslunnar
Persónuupplýsingar eru aðeins notaðar í tengslum við skipulag,
framkvæmd og eftirfylgni WRO®
á Íslandi.
- Skráning liða í landskeppni
- Samskipti við þjálfara og skóla
- Skipulag dagskrár, aðstöðu og keppnisflokka
- Búnaðarpantanir og tengd umsýsla
- Upplýsingar um fresti, reglur og undirbúning
- Skráning liða sem komast áfram á alþjóðleg mót
Myndir og myndbönd
Á landskeppni WRO® Íslands geta
skipuleggjendur, fjölmiðlar eða aðrir gestir tekið ljósmyndir og
myndbönd af keppninni, liðum, gestum og verkefnum.
Slíkt myndefni getur verið notað til að kynna WRO®
Ísland, STEAM-menntun og vélmennastarf í prentuðu efni, á vef,
samfélagsmiðlum eða í fréttum.
Miðlun upplýsinga
Upplýsingar eru ekki seldar eða afhentar óviðkomandi aðilum. Í
tengslum við alþjóðleg mót getur þó þurft að miðla nauðsynlegum
upplýsingum til WRO® skipuleggjenda
erlendis eða annarra aðila sem sjá um viðkomandi mót.
Varðveisla upplýsinga
Upplýsingar eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er vegna
skipulags, framkvæmdar, skráningar, uppgjörs eða eftirfylgni
viðkomandi WRO® tímabils.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingar eiga rétt á upplýsingum um vinnslu persónuupplýsinga,
aðgangi að eigin upplýsingum og, eftir atvikum, leiðréttingu, eyðingu
eða takmörkun vinnslu. Um þessi réttindi fer samkvæmt persónuverndarlögum
og almennri persónuverndarstefnu Háskóla Íslands.
Spurningar um vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við WRO®
Ísland má senda til WRO® Íslands:
wro [hjá] hi.is.