Búnaður

Búnaður og vélmennasett

Hér finnur þú yfirlit yfir þann búnað sem lið þurfa til að æfa fyrir WRO®, taka þátt í RoboMission eða Future Innovators og velja hentugt vélmennasett fyrir sitt skóla- eða æfingaumhverfi.

Grunnbúnaður

Hvað þarf hvert lið?

WRO® er tæknilega sveigjanlegt. Lið geta notað mismunandi vélmennakerfi, forritunarmál og byggingarlausnir, svo lengi sem búnaðurinn fylgir reglum viðkomandi keppnisflokks.

Vélmennasett

Hvert lið þarf að hafa aðgang að einu vélmennasetti fyrir 2–3 nemendur. Sama sett má nota í mörg ár og byggja áfram á milli tímabila.

Tölva eða spjaldtölva

Lið þurfa tæki til að forrita vélmennið, hvort sem það er gert í Python, blokkamáli eða öðru forritunarumhverfi sem passar við búnaðinn.

Æfingatími og aðstaða

Lið þurfa aðstöðu til að prófa, mæla, endurbæta og æfa lausnir sínar. Fyrir RoboMission þarf sérstaklega að huga að borði og keppnissvæði.

Eftir keppnisflokki

Búnaður fyrir RoboMission og Future Innovators

Sumt þarf í öllum flokkum, en RoboMission og Future Innovators gera ólíkar kröfur til æfingaefnis, prófunar og kynningar.

Fyrir alla flokka

  • Vélmennasett fyrir hvert lið
  • Tölva eða spjaldtölva til forritunar
  • Æfingatími og aðstaða
  • Þjálfari sem styður við skipulag

RoboMission

  • Keppnisborð eða æfingaborð
  • Keppnismotta eða æfingasvæði
  • Leikhlutir og verkefnakubbar
  • StarterMission svæði fyrir grunnfærni
  • Áreiðanlegir mótorar og skynjarar

Future Innovators

  • Vélmennasett með skynjurum og hreyfibúnaði
  • Efni til að smíða frumgerð
  • Veggspjöld, skýrsla og kynningarefni
  • Aðstaða til að prófa og sýna lausnina
  • Sveigjanlegt byggingarefni og prototyping-efni

Hvað er tekið með á keppnisdag?

Í RoboMission koma lið almennt með vélmennið sitt og tölvu eða spjaldtölvu. Keppnisborð, keppnismottur og leikhlutir eru hluti af æfinga- og mótsaðstöðu og eru ekki endilega búnaður sem hvert lið tekur með sér á keppnisdag.

Endurnýtanlegt og árlegt

Hvað er keypt einu sinni og hvað breytist á milli ára?

Mikilvægt er að greina á milli búnaðar sem nýtist mörg tímabil og efnis sem breytist með þema og verkefnum hvers árs.

Endurnýtanlegt efni

  • Vélmennasett
  • Tölvur eða spjaldtölvur
  • Keppnisborð eða æfingaborð
  • StarterMission æfingasvæði
  • Grunnbúnaður, skynjarar, mótorar og byggingarefni

Árlegt eða tímabundið efni

  • RoboMission keppnismottur fyrir tímabilið
  • Leikreglur og verkefni hvers aldurshóps
  • Future Innovators þema og verkefnalýsing
  • Viðaukar, stigaviðmið og uppfærðar reglur

Vélmennasett

Hvaða vélmennakerfi koma til greina?

WRO® er ekki bundið við eitt vörumerki. Skólar geta oft byrjað með búnað sem þeir eiga nú þegar, en ættu alltaf að bera búnaðinn saman við nýjustu reglur keppnisflokksins.

LEGO® Education

LEGO® Education SPIKE Prime og eldri LEGO® MINDSTORMS® Education EV3 búnaður er víða til í skólum. Það hentar vel til að byrja með, sérstaklega ef kennarar og nemendur þekkja nú þegar LEGO® Technic, skynjara og mótora.

  • Hentar vel fyrir byrjendur og skóla sem eiga LEGO® búnað
  • Styður blokkamál og/eða Python® eftir hugbúnaði
  • Gott framboð af kennsluefni og dæmum

MATRIX Robotics

MATRIX Robotics byggir á Arduino®-stýringu og býður upp á málmbyggingarefni, mótora og skynjara. Vettvangurinn getur hentað bæði í RoboMission og Future Innovators.

  • Hentar fyrir lið sem vilja sterkari byggingu
  • Getur nýtt C++ eða sjónrænt forritunarumhverfi
  • Til eru sett sem eru miðuð að WRO® flokkum

ELECFREAKS

ELECFREAKS notar micro:bit®-stýringu og býður upp á mótora, skynjara og byggingarefni sem getur sameinast öðrum kerfum.

  • Góður kostur fyrir skóla sem nota micro:bit®
  • Hægt að forrita með MakeCode, blokkum eða Python®
  • Getur hentað vel fyrir tilraunir og frumgerðir

fischertechnik®

fischertechnik® byggir á eigin byggingarkerfi og TXT 4.0 stýringu. Til eru sett sem henta sérstaklega fyrir RoboMission og almenn vélmennaverkefni.

  • Hentar vel í tæknimenntun og verkfræðilegri nálgun
  • Styður Blockly og Python® í Robo Pro Coding
  • Getur nýst bæði í þjálfun og frumgerðasmíði

Aðrir framleiðendur og eigið efni

Lið geta einnig notað búnað frá öðrum framleiðendum, blandað saman kerfum eða notað eigið byggingarefni, svo lengi sem búnaðurinn er leyfilegur samkvæmt reglum keppnisflokksins. Þetta á sérstaklega vel við í Future Innovators, þar sem frumgerðir geta nýtt pappír, tré, málm, 3D-prentaða hluti og annan efnivið.

Athugið reglur áður en keypt er

Sérstaklega fyrir RoboMission þarf að tryggja að vélmennið geti keyrt sjálfstætt og að búnaðurinn uppfylli tæknireglur tímabilsins. Forðist að byggja allt á búnaði sem þarf stöðuga fjarstýringu frá tölvu eða spjaldtölvu.

Ráðleggingar

Hvernig ætti skóli að velja búnað?

Besti búnaðurinn er ekki alltaf sá dýrasti. Hann þarf að passa við reynslu kennara, aldur nemenda, keppnisflokkinn og þann tíma sem skólinn hefur til að æfa.

01

Byrjið á því sem þið eigið

Ef skólinn á LEGO® SPIKE Prime, EV3, micro:bit® eða annan vélmennabúnað er oft skynsamlegt að byrja þar og byggja upp færni.

02

Veljið eftir keppnisflokki

RoboMission krefst nákvæmrar hreyfingar, skynjara og prófana. Future Innovators krefst meiri sveigjanleika, frumgerðasmíði og kynningarvinnu.

03

Hugsið um kennsluefni

Veljið búnað sem hefur gott aðgengi að leiðbeiningum, æfingum, dæmum og stuðningi fyrir bæði nemendur og þjálfara.

Vantar þig aðstoð við val á búnaði?

Hafðu samband ef þú vilt ræða hvaða búnaður hentar skólanum þínum, hvaða búnaðarpantanir eru í boði eða hvernig best er að byrja.